Reglulega birtast hérlendis í fjölmiðlum árlegar kannanir um dýrustu borgir heims. Stutt er síðan ein slík sýndi að Tókíó í Japan er sú allra dýrasta. Nema hvað hún er það ekki.
Sá heiður, ef heiður skyldi kalla, tilheyrir í raun Lúanda höfuðborg Angóla í Afríku en þar kostar vörukarfa 200 mismunandi vörutegunda nokkuð meira en í Tókíó sem kemur í öðru sætinu.
Er þetta niðurstaða árlegrar úttektar ráðgjafafyrirtækisins Mercer en sú úttekt er mun umfangsmeiri en sambærilegar úttektir aðrar og er því í raun réttari.
Hvað veldur því að Lúanda í Angóla er í fyrsta sætinu og reyndar önnur afrísk borg, N´Djamena í Chad, í þriðja sætinu má rekja til gjörspilltra stjórnvalda sem luma á ótöldum milljörðum tunna af olíu innan landamæra sinna. Þá er allur innfrastrúktúr af skornum skammti og hótel og veitingastaðir því sem næst teljandi á fingrum annarrar handar. Fyrirtækin geta því sett upp nánast þau verð sem þau kæra sig um og gera það þegar fölbleikir erlendir ferðamenn eiga leið um.






