Frá og með deginum í dag geturðu tekið með þér eins margar töskur um borð í vélar Etihad flugfélagsins og þig lystir. Jafnvel þó þú sért að fljúga á tilboðsmiða á ódýrasta farrými.

Margar léttar töskur í staðinn fyrir eina níðþunga? Þá er Etihad flugfélagið þitt. Skjáskot
Etihad, ítrekað eitt af bestu flugfélögum heims undanfarin ár, hefur nú ákveðið að slátra hefðbundnum farangursreglum sem velflest betri flugfélög brúka og leyfa farþegum sínum að innrita eins margar töskur og hver og einn vill. Með þeim takmörkunum þó að heildarþyngd þeirra fari ekki yfir leyfileg mörk. Sem í tilfelli Etihad er 23 kíló á ódýrasta farrými og 50 kíló í lúxusfarrými. Farþega þannig fræðilegt heimilt að innrita 23 eins kílóa töskur ef hann eða hún svo kýs.
Ók, kannski ekki gáfulegt að innrita 23 töskur en Etihad er hér er hugsa um hag flugfarþegans og það er vel. Við þekkjum það flest hér á landi að troða öllu klabbinu í eina níðþunga 23 kílóa tösku sem er normið þegar fljúga á í pakkaferðum út í heim enda okkur aðeins heimilt að taka með eina innritaða tösku í flestum tilfellum.
Etihad fattað að það er sýnu ljúfara fyrir ferðalanga að henda í eins og tvær tíu kílóa töskur en mökkfylla eina feita. Auðveldara fyrir ferðalanga, auðveldara fyrir færiböndin á flugvellinum, auðveldara fyrir starfsfólkið á vellinum og klárlega auðveldara að koma fyrir tíu kílóa töskum í farangurshluta vélarinnar en reyna að finna pláss fyrir níðþungar 23 kílóa töskur.
Meikar fullt sens ef þú spyrð okkur 🙂
PS: við hér höfum flogið með vélum Etihad í ein átta skipti eða svo og getum fullum hálsi mælt með því flugfélagi. Hér er allt hundrað og tuttugu prósent öllum stundum.







