Þá sjaldan íslenskar ferðaskrifstofur bjóða oss ferðir til Kúbu héðan af farsæla Fróni og heim aftur er kostnaðurinn ósjaldan að skjaga í milljón krónur á par eða hjón. Nú er mun ódýrari leið í boði.

Það er svo margt fallegt við Kúbu sem á ekkert skylt við Havana eða Varadero. Mynd Allan Hopkins
Nú þegar Wow Air hefur tekið upp á því að bjóða beint flug til Orlandó eins og Icelandair hefur gert um áraraðir lækkar verð þangað eins örugglega og að jólasveinninn setur í skóinn í desember. Til Flórída nú komist fram og aftur á mann fyrir 40 þúsund krónur í desember og janúar þegar þetta er skrifað með Wow Air og niður í 60 þúsund krónur með Icelandair.
En ekkert viti borið fólk er að hanga lengi í Flórída. Þó þar sé ýmislegt flott að sjá þá er það undantekningarlítið tilbúið stöff eins og Disneyland eða ill meðferð á dýrum í Sea World.
Það er hins vegar töluvert merkilegt að sjá á Kúbu Castrós ef fólk er á annað borð tengt við raunveruleikann og ekki yfirborðskennt drasl.
Og viti menn! Ef þú skottast yfir til Flórída í desember eða janúar þá er hægt að negla flug til Havana og aftur frá Flórída niður í 22 þúsund krónur þessa stundina ef þú bókar hjá Delta Airlines. Með öðrum orðum niður í 60 þúsund kall fram og aftur til Kúbu héðan ef þú hefur ekkert meðferðis.
Sérdeilis flottur díll ef þú spyrð okkur hér. Allt um málið hér.







