Það er margt í mörgu þarna úti og sem fyrr vita „sérfræðingar” lítið meira en við hin þegar kemur að framtíðinni. Eins og til dæmis hvort flugfélagið Wow Air verði yfirhöfuð til þegar sól hækkar á lofti næsta vorið.

Líkt og með Primera Air höfum við aðeins orð forsvarsmanna Wow Air þess efnis að allt sé í gúddí. Er á það treystandi? Skjáskot

Stjórn Primera Air tók nettan Geir Haarde á pakkann þegar tilkynnt var fáeinum vikum fyrir gjaldþrot fyrirtækisins að endurfjármögnun hefði tekist vonum framar og framtíðin væri björt. Svo björt að flugfélagið auglýsti nýja og spennandi áfangastaði alveg fram að gjaldþroti félagsins fyrr í þessari viku.

Wow Air Skúla Mogensen hefur einnig nýlega tilkynnt opinberlega að nýlegt skuldabréfaútboð hafi gengið smurt, peningar séu í hendi og framtíðin björt fyrir flugfélagið. En líkt og með yfirlýsingar Primera Air þá höfum við bara orð Wow Air fyrir að svo sé.  Líkt og Geir Haarde sagði okkur í aðdraganda Hrunsins að allt væri í þessu stakasta og næturfundir í Seðlabankanum hið eðlilegasta mál.

Vafi leikur á Fréttablaðinu

Viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins, Hörður Ægisson, sem oft hefur hitt naglann á höfuðið skrifar pistil þar sem hann metur það svo að „ólíklegt er að bæði félögin muni að óbreyttu lifa veturinn af nema fjárhagsstaðan verði treyst með verulegri hlutafjáraukningu.”

Verð á þotueldsneyti hækkað linnulítið frá október 2017 og spár gera ráð fyrir áframhaldandi hækkunum. Mynd IATA

Þar meinar blaðamaðurinn Icelandair og Wow Air.

Ritstjórn Fararheill tekur undir þessi orð þó ekki sé nema vegna þess að ekkert liggur fyrir um trygga framtíð Wow Air nema fréttatilkynningar flugfélagsins sjálfs þess efnis. Nákvæmlega eins og með Primera Air.

Önnur þúfa sem gæti oltið hlassi í þessu tilfelli er að meðalverð á þotueldsneyti er í dag tíu dollurum hærra en það var um miðjan september þegar Wow Air tilkynnti um velheppnað útboð. Flestar spár erlendra fræðinga gera ráð fyrir frekari hækkunum á eldsneyti en þegar er orðið og Wow Air er ekki varið fyrir neinum slíkum hækkunum.

Þetta merkir að ef eldsneyti var fjórðungur af heildarkostnaði Wow Air um miðjan september þá er kostnaðurinn í dag, tveimur vikum síðar, að slefa í 30 prósent. Það í ofanálag við að kjarasamningar eru meira og minna lausir næstu misserin og launakostnaður flugfélaganna gæti hækkað ef launafólk hefur sitt fram í vetur, bendir fátt til þess að Wow Air sé að fara að rokka nein ósköp á næstunni.

Með þetta í huga er þá óhætt að bóka flug með Wow Air vel fram í tímann?

Hæpið að okkar mati. Ekki svo að skilja að við óskum Wow Air ills. Þvert á móti en ólíkt Icelandair á Wow Air lítið sem ekkert eigið fé og á meðan forráðamenn Wow Air bjóða ekkert til að sanna sitt mál annað en yfirborðskenndar fréttatilkynningar er lítt á það að treysta.

Enginn af okkur fjórum hér allavega að bóka flug með Wow Air langt fram á veturinn. Geir Haarde var nefninlega að blöffa, Andri Már hjá Primera Air að blöffa og hver veit nema herra Mogensen hjá Wow Air sé líka að blöffa. Staðan sé sem sagt 99 prósent verri en gefið er í skyn…