A llt nú að mestu komið í gagnið í Frans. Búið að opna nánast að fullu fyrir ferðafólk hvort sem það er bólusett eða ekki.

Allt að færast í horfið í Frans. Mynd Ben Welle
Nú geta ferðamenn frá velflestum vestrænum löndum heimsótt Frakkland án þess að eiga sóttkví eða leiðindi á hættu. Ferðamenn þurfa ekki einu sinn bólusetningu en þeir þurfa þó nýlegt læknisvottorð með neikvæðri niðurstöðu.
Ekki nóg með landamæraopnunina heldur og afléttu stjórnvöld helstu takmörkunum í vikunni og nýliðinn miðvikudag máttu barir, veitingastaðir og aðrir fjölfarnir staðir opna að fullu innandyra fyrir gesti og gangandi.
Gott mál í alla staði 🙂







