Eins og raunin er með bóndann á leið út í gripahús þá er föstudagurinn til fjár. Hvað þá betra en fara inn í helgina vopnuð far-eða spjaldtölvu, nettengingu og nokkrum fantagóðum ferðatilboðum?

Fólk þarna úti eitthvað efins? Einhverjir búnir að gleyma að ferðalög er það eina sem þú kaupir sem gerir þig ríkari. Kannski þetta myndband kveiki gamla neista.

Fararheill tók léttan rúnt yfir helstu ferðatilboð sem við fáum í pósthólfið okkar og tókum saman þau þrjú sem upp úr standa og gætu kannski komið brosi á varir haustbitinna Íslendinga.

Vefmiðillinn Secret Escapes sem stærir sig af því að finna sérstaklega góð ferðatilboð í lúxuskantinum er að bjóða fantagóð tilboð í golfferðir þessa stundina. Þau tilboð þó ekki aðgengileg nema gerast meðlimur gegnum Facebook eða Google+. Meðal þess sem þar er í boði er 35 til 65 prósenta afslættir á golfi á nokkrum af frægari golfvöllum heims eins og K Club á Írlandi, Belfry á Englandi og Celtic Manor í Wales. Á öllum þremur hefur Ryder-bikarkeppnin í golfi farið fram. Nánar hér.

Hin virta ferðaskrifstofa Kuoni í Bretlandi er að bjóða ferðatilboð sem sannarlega er aðeins út úr boxinu. Sú er til eyjunnar Borneó og gist á hóteli sem ítrekað hefur fengið verðlaun fyrir gæði í gegn. Borneó er merkileg fyrir margar sakir og ekki hvað síst fyrir að vera stærsta eyjan í Kínahafi og ekki síður fyrir að skiptast milli þriggja landa. Indónesía, Brunei og Malasía eiga öll part af eynni. Í öllu falli sérstök ferð á yndislegar slóðir og verðið frá London í nóvember allt niður í 158 þúsund á mann miðað við tvo. Það er ruglgott verð gott fólk. Meira hér.

Aldrei leiðinlegt að heimsækja Kúbu og þaðan af síður með 180 þúsund króna afslætti. Holiday Place í Bretlandi er að bjóða þessi líka fínustu ferðatilboð þar sem dvalið er í þremur borgum og farið yfir margt það merkilegasta á eyjunni. Havana, Trinidad og Varadero í pakkanum og allt innifalið á þeim tveimur síðasttöldu. Brottfarir frá London í allan vetur en lágmarksverð allt niður í 215 þúsund krónur. Algjört gjafverð.

* Í öllum tilfellum þarf fólk sjálft að komast til og frá Íslandi en það er hending ef það finnst ekki fram í tímann á undir 30 þúsund krónum með Wow Air, easyJet og á köflum með Icelandair. Allar ofangreindar ferðaskrifstofur eru þekktar, traustar og viðurkenndar.