Ekki furða að traust á fjölmiðlum fari þverrandi. Ein stærsta „frétt” Stöðvar 2 þessa vikuna var þessi hér þess efnis að eldri Íslendingar flykkist til Portúgal og sleppi þannig við skatta og skyldur í tíu ár.

Að tólf einstaklingar setjist að í Portúgal árlega að meðaltali getur alls ekki kallast að allir séu að flykkjast til landsins. Skjáskot

Hvar eigum við að byrja?

Í fyrsta lagi eru engir að FLYKKJAST til Portúgal. Samkvæmt tölum sem koma fram í umræddri „frétt” hafa 77 íslenskir eldri borgarar flutt til Portúgal á síðustu FIMMTÁN ÁRUM!!! Sirkabát tólf einstaklingar á ári. Ef hægt er að kalla það að FLYKKJAST étum við hatt okkar, staf og lifrarpylsu með.

Enn verra að það er október 2018 en flott grafík Stöðvar 2 tekur aðeins til loka árs 2017. Hvernig veit fréttastofan að fólk sé að „flykkjast” til Portúgal síðustu og verstu?

Í þriðja lagi er ekki tekið fram í fréttinni að það er lögfræðingur og einn eigenda PricewaterhouseCooper sem er að boða þetta fagnaðarerindi. Lögfræðingur sem tekur að sér að gera og græja skattleysi í Portúgal. Gegn feitu gjaldi auðvitað.

Aðeins kemur fram í fréttinni að rætt sé við lögfræðing en ekki einn aðaleiganda þess fyrirtækis hérlendis. Sama fyrirtæki og tók þátt í að fegra bókhaldið hjá bönkunum íslensku fyrir hrun og greiddi feita sekt vegna þess á endanum. Sem sagt svindlfyrirtæki.

Alas, ekki þar fyrir að það sé ekki brill hugmynd fyrir ellilífeyrisþega landsins að flytja til Portúgal. Þar 15 prósent ódýrara að vera og njóta en á Spáni burtséð frá öllum skattaskyldum. Öllu skárra að dúllast þar í hita og mollu en hér heima þar sem enginn nennir að heimsækja og kuldi og trekkur setur strik í allt daglegt líf.

Gallinn bara sá að ekkert beint flug er til Portúgal frá Íslandi og verður líklega aldrei. Og fátt leiðinlegra en þurfa að millenda og vesenast til að komast alla leið.