Og við sem ætluðum að mæla með að fólk nýtti sér rútuferðir Grey Line þegar för er heitið í Leifsstöð og heim aftur að flugi loknu. Við hætt við það.

Stjórnarformaður Grey Line líka að greiða töluvert minni skatt en við hin…
Þær skipta hundruðum greinarnar sem Þórir Garðarsson, stjórnarformaður rútufyrirtækisins Grey Line, hefur ritað síðustu árin um gildi þess að leyfa ferðaþjónustuaðilum að vaxa og dafna án þess að kaffærast í sköttum og gjöldum. Sjálfur hikar Þórir ekki við að greiða eins lítinn skatt og honum er unnt.
Fyrr í vikunni greindum við frá því að einn helsti eigandi Flybus, Kynnisferða, dregði fram lífið á skitnum 65 þúsund krónum á mánuði.
Stjórnarformaður og fyrrum forstjóri helsta samkeppnisaðilans, Grey Line, er aðeins að standa sig betur og tekur heim tæplega 1500 þúsund krónur í mánaðarlaun. Enginn þarf að svelta á hans heimili. En Þórir, sem var um tíma í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar, tekur líka heim töluvert meira en það og greiðir af því brot af því sem við hin þurfum að punga út í skatta og skyldur.
Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi skjáskoti af vef tekjur.is.

Karldelinn er ekki aðeins með 1,449 milljónir í launatekjur heldur þarf hann hjólbörur líka til að skottast í kotið með tæplega þrjár milljónir króna mánaðarlega ofan á það. Karldelinn í Mosfellsbænum er að taka heim mánaðarlega alls um 4,5 milljónir króna og greiðir helmingi LÆGRI skatt en við hin af stærstum hluta þess.
Sem er töluvert umfram það sem fólkið á gólfinu í ferðaþjónustunni fær í sinn hlut fyrir mánaðarlanga vinnu á flestum stöðum. Það telst til tíðinda að almennur starfsmaður í ferðaþjónustu nái 300 þúsund krónum í mánaðartekjur fyrir skatt.
Ljóst að hinn hálfsköllótti Garðarsson er ekki alveg að standa vaktina. Hvorki fyrir sitt fólk í ferðaþjónustunni né heldur fyrir okkur hina almennu borgarana. Kannski er hann bara miklu merkilegri en við hin…
Líklega ekki. Full ástæða til að nota aðrar leiðir til og frá Leifsstöð en með rútum Grey Line.







