Greint var frá því í dag að breska flugfélagið Flybe myndi fljúga milli Keflavíkur og Birmingham í Englandi þetta sumarið. Sala miða er þegar hafin.

Enn eitt breskt flugfélag æði í samkeppni hingað til lands.

Enn eitt breskt flugfélag æði í samkeppni hingað til lands.

Þetta er jákvætt að flestu leyti. Samkeppnin um farþega til Englands harðnar enn meira en orðið er sem er eðalfínt fyrir okkur neytendur. Óvíst er þó hvort fargjöld per se lækki mikið því easyJet hefur gegnum tíðina almennt boðið lægri fargjöld en Flybe. En við komumst beint til Birmingham sé sú borg á óskalista einhvers.

Hið neikvæða er kannski að Flybe þykir fremur óáreiðanlegt flugfélag. Það fær aðeins þrjár og hálfa stjörnu af tíu mögulegum hjá viðskiptavinum samkvæmt einkunnagjöf Skytrax sem er svona aðeins yfir því sem Iceland Express náði að státa sig af til samanburðar á sínum tíma.

Óhætt er að kíkja engu að síður á þær flugleiðir sem Flybe er að bjóða frá Birmingham. Þar er töluvert í boði langi fólk áfram á aðeins meira spennandi stað en Birmingham. Allt leiðakerfi þeirra má sjá hér.