Nafnið Albufeira á Algarve í Portúgal ætti að hringja nokkrum bjöllum hjá fjölda Íslendinga enda verið boðið upp á áætlunarferðir þangað um árabil. Tók sá staður nokkuð við Benídorm á Spáni kringum aldamótin sem helsti sumardvalarstaður íslenskra fjölskyldna. Albufeira er vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna í Portúgal og hefur verið það undanfarin ár.
Kannski helgast það af því að staðirnir tveir eru ekki svo ólíkir. Sól er þar næg og sandurinn heitur og heillandi. Þá eru gnótt tiltölulegra ódýrra hótela á staðnum og allt til alls sem hinn hefðbundni vestræni ferðamaður vill njóta þegar hann slakar á.
Að þessu sögðu er ennfremur ljóst að Albufeira er að mestu sálarlaus staður með öllu núorðið. Heimamenn, sem margir eru aðfluttir útlendingar, eru margir með dollaramerki í augum. Hér er fátt að sjá eða upplifa sem lifað getur í minningunni lengur en fimm mínútur ef frá eru talin yndisleg augnablik með fjölskyldu og vinum.
Þannig vilja auðvitað margir hafa það sem ekki nenna eða hafa áhuga á minjum eða náttúru heldur vilja fá sína skemmtun án fyrirhafnar og þar er Albufeira fyrsta flokks hvort sem um er að ræða eldri borgara sem spila vilja golf eða börnin sem vilja svamla liðlangan daginn í kælandi hótelsundlaugum.
Hér búa 35 þúsund manns en þar af er talið að um átta þúsund séu aðkomumenn sem sest hafa að og miðað við magn enskra og írskra bara stunda þeir sennilega allir bjórsölu.
Til og frá
Til að komast til Albufeira er jafnan flogið til borgarinnar Faro sem er liðlega 30 kílómetra frá Albufeira. Aeroporto Faro er þægilegur völlur og ekki of stór. Ferðalagið tekur um 40 mínútur á milli.
Sé ekki um skipulagða ferð að ræða og rúta sem bíður farþega er sennilega minnsta fyrirhöfnin að taka leigubíl til Albufeira. Fast verð er frá flugvellinum og þangað og er 5.900 krónur miðað við fjóra farþega.
Auðvelt er líka að leigja bíl á flugvellinum og getur kostnaður við slíkt stundum borgað sig ef planið er að skoða sig um víðar en bara í Albufeira. Lágmarks sólarhringsgjald fyrir meðal fjölskyldubíl er kringum 4.500 krónur með ótakmörkuðum kílómetrafjölda. Hafa skal þó í huga að umferð í Albufeira er í leiðinlegri kantinum; ökumenn sýna ókunnum enga linkind og traffíkin er veruleg.
Sé um fleiri en fjóra að ræða sem ferðast saman er vænlegast að panta sér skutlu. Það eru stærri bílar sem taka allt frá sex farþegum og fleiri. Um tvenns konar skutlur er að ræða. Annars vegar sameiginlega skutlu sem deilt er með öðrum farþegum er sömu leið fara ellegar sérskutlu sem er aðeins fyrir þig og þína. Prís á haus með sameiginlegu skutlunni er 1200 krónur en 1600 með sérskutlu. Panta þarf slíka bíla með fyrirvara. Eitt slíkt fyrirtæki hér.
Rútur og lestir eru möguleikar líka en þá verður fyrst að fara inn í Faro og þaðan taka lest eða rútu. Verðin eru ekki það mikið hagstæðari að það borgi sig mikið.
Samgöngur og skottúrar
Þó Albufeira sé ekki stór er þar strætókerfi sem samanstendur af þremur leiðum. Giro eru þeir kallaðir og fara á hálftíma fresti frá rútustöð borgarinnar til helstu úthverfa. Mælt er með að taka nokkra rúnta með þeim og fá þannig ódýra en yfirgripsmikla mynd af borginni á skammri stundu. Stakt far kostar 230 krónur og gildir hver miði í klukkustund.
Til umhugsunar: Einhverra hluta vegna finnast engar opinberar upplýsingar um Giro kerfið. Láttu það ekki trufla þig. Þeir eru sannarlega þarna til staðar og á rútustöðinni má sjá helstu leiðakerfi og tímatöflu.
Það verður þó að segjast sem er að fyrir hinn hefðbundna fölbleika Íslending sem vill láta sólina steikja sig og ná slökun í fríinu er ekki þörf á öðru en tveimur jafnfljótum í Albufeira. Þetta er ekki mekka merkilegra minja og mikillar sögu og fátt fyrir utan miðborgina sem er þess virði að gera sér ferð.
Söfn og sjónarspil
>> Fornleifasafnið (Museu Municipal de Arquelogia) – Hefðbundið fornleifasafn og ekkert stórmerkilegt sem slíkt. Helst er tæpt á sögu Albufeira og Algarve og kannski forvitnilegt fyrir áhugamenn um Rómverja og Mára sem hér áttust við eins og í Andalúsíu á Spáni. Safnið stendur við Praça da República. Opið 14 til 20 virka daga nema mánudaga. Miðaverð 600 krónur.
>> Safn Samora Barros (Galeria de Arte Pintor Samora Barros) – Einn frægasti sonur Albufeira er listmálarinn Samora Barros en frægð hans náði þó aldrei út fyrir landsteina. Áhugavert lítið safn samt við Plaza Duerte Pacheco. Opið alla daga nema mánudaga milli 10 og 17. Miðaverð 400 krónur. Heimasíðan.
>> Xorino hellarnir (Gruta do Xorino) – Skammt frá Albufeira má finna stóra hella sem aðeins eru aðgengilegir frá sjó. Þangað flýðu uppreisnarmenn gegn konunginum árið 1833 og höfðust við um tíma. Boðið er upp á bátsferðir að hellunum frá höfninni í Albufeira.
>> Paneco pallurinn (Elevador do Paneco) – Athyglisverður útsýnispallur til hafs á Paneco ströndinni í Albufeira. Skemmtilegur arkitektúr gefur útsýninu aukið vægi.
Verslun og viðskipti
Almennt er hægt að gera hvað mest og best kaup í allri Evrópu í Portúgal en úrval verslana í Albufeira er takmarkað og fákeppnin gerir það að verkum að góð kaup eru hér vandfundin. Helst er að finna góðar vörur í smærri verslunum og þá er helst að nefna skó, fatnað eða leðurvörur hvers konar en Portúgalar framleiða ekki síðri skófatnað en til að mynda Ítalir.
Í Albufeira eru margar smærri verslanir kringum Estrada das Sesmarias. Hér eru engar stórverslanir eða verslunarmiðstöðvar sem heitið getur að frátaldri Algarve Shopping við Lanka Parque Comercial. Þar er að finna um hundrað verslanir í heildina.
Golf og gleðskapur
Þrír golfvellir eru í eða við Albufeira. Tveir þeirra eru níu holu vellir. Hellingur í viðbót víðar á Algarve svæðinu.
Líf og limir
Borgin er tiltölulega örugg. Þjófnaðir eru þó nokkuð algengir og eitthvað er um innbrot í bíla og hús. Þá er alltaf nóg af fólki sem býður falsvarning á götum úti. Alla jafna á fólk að vera þokkalega öruggt hér. Einhver slagsmál eiga sér stað á kvöldin en yfirleitt eru það ferðamenn og þá gjarnan Bretar sem stunda þá iðju.
Strendur Albufeira eru afskaplega fínar og ekki skemmir að margar þeirra eru klettaskornar svo þær eru fallegar að auki. Hafa skal varann á sér við sund þar sem nibbur og hvassa steina er líka að finna í sjávarborðinu og rétt undan ströndinni. Þá skal sérstaklega hafa varann á sér við sund því straumar eru hér afar sterkir.
Matur og mjöður
Veitingastaðir eru hér óteljandi en allir sem einn bjóða afskaplega einhæft úrval. Úrval sem hinn vestræni ferðamaður hefur áhuga á. Afar fáir staðir hér bjóða portúgalskan mat en helst er að spyrja heimamenn ef fólk vill eitthvað umfram hina hefðbundnu steik og franskar.
Mjöð síður en svo vandamál að nálgast. Barir og klúbbar eru hér út um allt enda næturlífið gott þó vissulega einskorðist það heldur við unga fólkið.
View Albufeira Portúgal in a larger map




