Án þess að ritstjórn hafi gert á því stórvísindalega úttekt þá hefur verð á flugi til London frá Íslandi með íslensku flugfélögunum Icelandair og Wow Air ekki lækkað hætishót. Sem er undarlegt því pundið hefur fallið um 30 prósent á liðnu ári gagnvart krónu.

Aldrei græða íslenskir ferðalangar á styrkingu krónu hjá Icelandair eða Wow Air

Aldrei græða íslenskir ferðalangar á styrkingu krónu hjá Icelandair eða Wow Air

Það auðvitað merkir að allur kostnaður flugfélaganna tveggja í Bretlandi hefur lækkað sem því nemur og þó flugvallargjöld og öryggisgjöld og hvað þetta allt heitir annars sé aðeins lítill hluti fargjalds þá ætti sú lækkun engu að síður að sjást þegar við ætlum að gera okkur dagamun.

En neibb. Enn er almennt lægsta verð aðra leið til London með Wow Air á tæpar 9 þúsund krónur og hjá Icelandair um eða yfir fimmtán þúsund krónur. Nákvæmlega sama lægsta verð og var í boði haustið 2015 þegar pundið kostaði okkur 30 prósent meira en nú.

Vitaskuld eru tvær hliðar á öllu. Styrking krónu gerir allt dýrara fyrir Breta og aðra hvers gjaldmiðlar gefa eftir gagnvart þeirri íslensku. Og auðvitað hafa bæði umrædd flugfélög mestar tekjur sínar af erlendu ferðafólki. Þau eru engu að síður íslensk fyrirtæki og ættu að skila gengishagnaði að hluta til innlendra viðskiptavina eins og önnur.

Hundfúlt og lélegt að loks þegar íslenska krónan fer að bíta eftir áratugi marandi í hálfu kafi þá njóta ferðaglaðir Íslendingar þess ekki með neinu móti hjá flugfélögunum. Við greiðum feitt þegar krónan er í fatla og við greiðum feitt þegar krónan stígur trylltan dans.

Eitthvað bogið við það.