Tíðindi

Flugfélög farin að hækka fargjöldin

  04/03/2011nóvember 23rd, 2014No Comments

Eins og Fararheill skýrði frá í gær er það mat framkvæmdastjóra Iceland Express að tímaspursmál sé áður en flugfélagið verður að hækka fargjöld sín. Sú þróun er þegar hafin annars staðar því litlar fargjaldahækkanir hafa orðið hjá mörgum flugfélögum beggja vegna Atlantshafsins.

Hafa þannig öll stóru bandarísku flugfélögin, Delta, US Airways og Continental þegar hækkað fargjöldin þessa vikuna og nokkrar ferðaskrifstofur í Evrópu hafa þegar í þessari viku lagt á auka eldsneytisgjald. Flugfélögin Lufthansa og British Airways íhuga það sama samkvæmt breskum miðlum.

99.9 prósent öruggt er að bæði Icelandair og Iceland Express muni einnig hækka fargjöld fljótlega.