Flugfélagið easyJet henti fyrr í dag út 150 þúsund sætum í vélum sínum á tilboðsverði sem aðeins gildir ef tveir bóka flug saman. Engu að síður kannski eitthvað sem ferðaþyrstir hafa áhuga að skoða.

Góð tilboð easyJet þessa stundina. Mynd Clement Alloione
Það er orðið erfitt að finna flug með lággjaldaflugfélögum á súpergóðu verði þetta sumarið. Til þess er eftirspurnin einfaldlega of mikil og sýnir enn og aftur nauðsyn þess að bóka flug og ferðir með góðum fyrirvara til að spara háar upphæðir.
Almennt er flug aðra leiðina án farangurs hjá easyJet ekkert til að hrópa húrra fyrir því slík fargjöld eru algeng þar. En ekki lengur á vinsælum leiðum yfir sumarið. Flugfélagið hefur þó hent út góðum pakka niður í sjö þúsund aðra leið en aðeins ef tveir bóka saman flugið. Um er að ræða flug yfir sumartímann.
Um að gera að skoða það í þaula hér.







