Eins og komið hefur fram hyggst British Airways hefja flug til og frá Íslandi seint í haust. Það náttúrulega frábærar fregnir því samkeppni eykst og verð lækkar plús náttúrulega að það flugfélag flýgur nánast um allan heim frá Englandi.

Ferðaþjónn British Airways getur gefið hugmyndir að ferðum út í heim, Mynd Pieter van Marion

Ferðaþjónn British Airways getur gefið hugmyndir að ferðum út í heim, Mynd Pieter van Marion

Það verður því til dæmis minnsta mál að þvælast héðan til fjarlægra staða og bóka farangurinn alla leið sé bókað með breska flugfélaginu. Það er jú eitt það allra leiðinlegasta við að þvælast út fyrir þann ramma sem innlendar ferðaskrifstofur setja að þurfa að hanga með farangur lon og don á flugvöllum meðan beðið er eftir næsta flugi. Til dæmis er hvorki í boði hjá Icelandair né Wow Air að bóka farangur alla leið þó för sé haldið áfram lengra en þau fara. Sem ætti auðvitað að vera hluti af góðri þjónustu.

En vissir þú að British Airways er að jafnaði að selja átján þúsund mismunandi ferðapakka? Aðeins meira úrval þar en finnst innanlands og um að gera að kíkja á það meðan fargjöld BA eru góð eða sæmileg til og frá Íslandi. Flugfélagið býður meira að segja svokallaðan Travel Finder til að aðstoða þig að finna ljúfa ferð fyrir þig og þína. Engu slíku fyrir að fara hjá afturhaldssömum íslenskum flugfélögum.

Travel Finder hér ef þig langar að landa ferð.