Það virðist oft á tíðum vera keppikefli stöku ferðaskrifstofa hérlendis að blekkja hugsanlega viðskiptavini sína og virðast ekki margar þeirra sjá sér hag í að koma fram við fólk eins og manneskjur. Nú sendir ferðaskrifstofan Heimsferðir sumarbækling sinn inn á flest heimili landsins og þar er að finna blekkingar út í eitt.
Þar á ritstjórn Fararheill sérstaklega við auglýsingar á síðu 5 og 15.
Á þeirri fyrri er auglýst flug aðra leið með sköttum til Billund í Danmörku í allt sumar frá 14.900 krónum. Eins og sjá má á skjáskotinu hér að neðan sem tekið var klukkan 10 þann 16. febrúar 2013, sama dag og sumarbæklingurinn kom í hús er ekki eitt einasta flug til Billund á 14.900 krónur. Fargjaldið er raunar í öllum tilvikum fimm þúsund krónum hærra en það.
Á síðu 15 eru sömuleiðis auglýst flugsæti en að þessu sinni til Alicante á Spáni. Þau kosta frá 19.900 krónum aðra leið með sköttum. Á seinna skjáskotinu hér fyrir neðan, sem tekið var á sama tíma og hið fyrra, má glöggt sjá að hvergi er að finna ódýrara flug en á 25.900 krónur og reyndar flest fargjöldin mun hærri en það og alveg upp í tæplega 50 þúsund krónur aðra leiðina.
Þetta væri mögulega skiljanlegt ef bæklingur Heimsferða væri orðinn nokkurra daga gamall enda fljúga bestu tilboðin út fyrst.
En þetta er bæklingur sem borinn var í hús með Fréttablaði dagsins. Hann er glænýr.
Þetta er ekki hægt að kalla annað en vísvitandi blekkingar.

Öll flug Heimsferða til Billund og hingað aftur í sumar. Ekki eitt einasta á auglýstu lágmarksverði í glænýjum bæklingi ferðaskrifstofunnar

Nákvæmlega sama sagan hér. Auglýst verð 19.900 hvergi að sjá fjórum klukkustundum eftir útkomu bæklingsins






