Icelandair býður nú pakkaferðir til Boston þar sem gist er fjórar nætur en aðeins greitt fyrir þrjár.
Er þar um að ræða gistingu á einu af Hilton hótelunum í Boston, Hilton Boston Financial District, en þetta ákveðna hótel þykir í lakari kantinum samkvæmt Tripadvisor og lendir í 45. sæti af 73 hótelum í Boston.
Gildir tilboð Icelandair um ferðir frá 21. nóvember til 31. mars á næsta ári. Verð á mann í tvíbýli er 79.900 krónur miðað við ódýrasta flugklassa og ódýrasta fargjaldið hverju sinni.
Heimasíða Icelandair hér.








