Flugmiðillinn Dohop er sekur um fleira en finna ekki alla þá aðila sem bjóða flug milli Keflavíkur og London næsta vetur. Þar finnst heldur ekki beint flug til Gdansk í Póllandi.

Menn seinir til hjá Dohop að setja inn í kerfin nýjasta nýtt og viðskiptavinir fá því ekki endilega rétt verð né flug
Það vekur athygli fyrir þær sakir að rúmur mánuður er síðan lággjaldaflugfélagið Wizz Air tilkynnti um formlegt áætlunarflug milli Keflavíkur og Gdansk og það strax í sumar. Við fjölluðum um málið á sínum tíma eins og lesa má um hér.
Glöggur lesandi benti okkur á þessa staðreynd og fannst miður sem er fullkomlega rétt mat. Meðan satt er að breytingar gerast ört í flugheimum og það sé líka staðreynd að Dohop sé ekki eini flugvefurinn sem ekki er kominn með nýjasta nýtt inn í kerfin þá er þetta dapurt prógramm í öllu tilliti. Jón og Gunna í Grafarvogi sem ekki fylgjast náið með gætu haldið að það sé hreint engin bein leið frá Íslandi til Gdansk. Aðeins flug Wow Air til Varsjár og bíll þaðan eða í óbeinu flugi gegnum Berlín. Hjónakornin fyrir vikið greiða töluvert meira fyrir flugið.
Sem er á skjön við það sem flugleitarvélar eiga að standa fyrir. Ekki síst þá flugleitarvél sem hvað best þykir vera samkvæmt World Travel Awards. Þar á að vera bókað að finna lægsta verð á flugi eða því sem næst. Sök sér að það taki viku, tvær kannski að koma nýjum upplýsingum inn í kerfið en að það taki rúman mánuð er barasta falleinkunn og hananú. Sérstaklega þegar kemur að næstu verðlaunaafhendingu hjá World Travel Awards.







