Þann 22. apríl hið heilaga ár 2016 kostaði hvert hlutabréf í Icelandair rétt rúmlega 38 krónur. Tæplega fjórum árum síðar hefur virði bréfa lækkað um 80%. Hvers vegna hafa lífeyrissjóðir landsmanna ekki fyrir löngu sagt skilið við flugfélagið?

Björgólfur Jóhannesson, til vinstri, fór langleiðina með að setja Icelandair á hausinn á annatíma áður en hann var rekinn og tók við Samherja. Aðkoma stjórnarformannsins, Úlfars Steindórssonar, til hægri, hefur ekki bætt eitt né neitt. Skjáskot

Það engar fréttir að delar og dusilmenni hangi á feitum fjósbitum í lífeyrissjóðum landsmanna. Dýrasta lífeyrissjóðskerfi heims segja sumir. Við plebbanir látum það að mestu yfir okkur ganga enda fregnum við aldrei nokkurn tíma af því að tiltekinn lífeyrissjóður hafi gert upp á bak. Feit leitun að slíkum fréttum í Frétta- eða Morgunblaðinu.

Lífeyrissjóðir landsmanna eiga ennþá tæplega 45 prósenta hlut í flugfélagi sem hefur blætt peningum síðustu árin hraðar en holdsveikur maður með niðurgang og kórónavírus.

En hvers vegna?

Fræðingarnir í lífeyrissjóðunum

Alls ómögulegt að komast að því hvað séntilmenni eða konur ákveða hvað lífeyrissjóðirnir skuli kaupa og hvað ekki. Engar upplýsingar um slíkt á heimasíðum lífeyrissjóðanna. Þaðan af síður upplýsingar um hvort þeir einstaklingar sem ráða kaupum og sölum eigi kannski prívat og persónulega hluti í hinum og þessum fyrirtækjum.

Allt eftir sjálfstæðisbókinni sem sagt.

En það þarf enga sérfræðinga til þegar bréf í Icelandair hafa lækkað um rúm 80 prósent á fjórum árum. Það þarf enga stærðfræðigetu til þegar bréf Icelandair hanga kringum sjö til átta krónur síðan í júlímánuði 2018.

Hvers vegna eiga lífeyrissjóðir landsmanna enn risahluti í farlama flugfélagi sem náði EKKI að sýna hagnað þegar ferðamannafjöldi til landsins var sem mestur og hefur síðan gert hvert glapparskotið á fætur öðru?

Hvers vegna eiga lífeyrissjóðir landsmanna enn risahluti í farlama flugfélagi sem hefur úthýst hundruðum starfa til erlendra aðila til að þurfa ekki að borga íslenskum lífeyrisþegum?

Hvers vegna eiga lífeyrissjóðir landsmanna enn risahluti í farlama flugfélagi sem rekur einhvern elsta flugflota Evrópu og ákvað að endurnýja flotann með einhverjum vafasömustu vélum heims?

Gengi bréfa Icelandair síðustu árin. En lífeyrissjóðirnir hanga á hlutunum eins og hundur á roði.

Hvers vegna eiga lífeyrissjóðir landsmanna enn risahluti í farlama flugfélagi sem tók landann í þurrt fjárhagslega um áratugaskeið og tók upp á því að nýju um leið og Wow Air dó drottni sínum?

Hvers vegna eiga lífeyrissjóðir landsmanna enn risahluti í farlama flugfélagi sem hefur ALDREI séð ástæðu til að bjóða landsmönnum upp á beint flug til vinsælustu áfangastaða landans?

Einhver hefði haldið að starfsfólk lífeyrissjóðanna hefði hag Jóns og Gunnu númer eitt, tvö og þrjú. En sé haft hugfast að lítil sem engin breyting hefur orðið á hlutafjáreign sjóðanna í Icelandair þó bréf fyrirtækisins hafi fallið hraðar en World Trade turnarnir í New York 2001 síðustu misserin og árin.

Þess vegna þarf næsta kynslóð að sætta sig við kúk og kanil þegar við komumst á eftirlaun. Bara vegna þess að ókunnugt vitlaust fólk veit ekkert hvað það er að gera. Því líkurnar á því að bréf Icelandair hækki á næstu árum eru litlar sem ENGAR. Alltaf gott að losa sig við súr bréf áður en þau verða verðlaus með öllu.

En síðan hvenær hafa lífeyrissjóðir landsmanna hugsað um hag lífeyrisþega landsins…