R itstjórn hefur ávallt verið þeirrar skoðunar að góð vara eða þjónusta tali fyrir sig sjálf og fyrirtæki eigi ekki né þurfi að blása slíkt út eða monta sig af slíku eins og reyndar þau flest gera. Hvað finndist okkur um manneskju sem sífellt gortaði af afrekum sínum?

Ef þú dettur um eitthvað stórkostlegt tilboð á gistingu þá látum við sannarlega vita af því og segjum þér hvað þú ert að spara frá hefðbundnu verði.

Ef þú dettur um eitthvað stórkostlegt tilboð á gistingu þá látum við sannarlega vita af því og segjum þér hvað þú ert að spara frá hefðbundnu verði.

Við höfum þó annars lagið gert skurk að kynna hótelbókunarþjónustu okkar og þá sem nú tekið fram að það sé nú ekki til að plata eða pretta eins og oft er raunin með slíka þjónustu. Við vitum einfaldlega að við erum með toppvöru í höndunum alveg eins og lærðir smiðir vita upp á hár hvaða tegund af tækjum þola mest og endast lengst.

En það er eitt sem við höfum ekki bent á og það er að endrum og sinnum detta þar inn gistitilboð sem eru það langt undir venjulegu verði að tíðindum sætir. Það er við þær aðstæður sem þú sérð skjámynd á borð við þá hér til hliðar. Í þessu tilfelli fannst gisting í tvær vikur á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu á tæplega 60 þúsund króna lægra verði en yfirleitt er raunin á þeim tíma sem um var að ræða. Það er dúndur sparnaður sem vit er í ef þú spyrð okkur.

En slík megatilboð er ekki hægt að finna með leit. Þau detta inn og út allan daginn hjá þúsundum hótela og eina leiðin til að detta um eitt svoleiðis er að fara áfram í bókunarferlinu eftir að heppilegt hótel hefur verið fundið.

Ekki þar fyrir að verð sé lélegt þó hamingjuóskirnar detti ekki í hús. Þvert á móti eins og allir sem láta á reyna komast að raun um. Þetta er bara stór aukabónus 🙂