Icelandair er þriðja besta flugfélagið á styttri flugleiðum samkvæmt nýrri úttekt Telegraph í Bretlandi og skýtur þar risum á borð við KLM, Lufthansa og easyJet ref fyrir rass.

Icelandair þykir gott til brúks meðal Breta á skemmri leiðum
Dagblaðið framkvæmdi könnun meðal Breta á því hvaða flugfélög væru best á styttri leiðum og svo lengri leiðum og nær Icelandair inn á topp 20 á báðum stöðum. Þriðja sætið æði gott á skemmri leiðum þar sem 37% sögðu íslenska flugfélagið best. Aðeins British Airways og Swiss fengu betri útkomu.
Mun færri gefa Icelandair góða einkunn á lengri flugleiðum en þar endaði flugfélagið í 17. sætinu. Engu að síður mæla fleiri með Icelandair en Quantas og Finnair svo sá árangur ekki alveg ónýtur. Nóg pláss þó til að bæta árangurinn þar.
TOPP 5 Á LENGRI FLUGLEIÐUM:
- Emirates 60%
- Singapore Airlines 59%
- Air New Zealand 49%
- Virgin Atlantic 43%
- British Airways 41%
TOPP 5 Á SKEMMRI FLUGLEIÐUM:
- British Airways 63%
- Swiss 39%
- Icelandair 37%
- Aurigny Air 35%
- KLM 30%







