Víkingarnir áttuðu sig á fyrir margt löngu að heimskt er heimaalið barn og sá einn veit er víða ratar. Þess vegna er sérstaklega gaman að fylgjast með ævintýrum hins breska Karl Pilkington í þáttum er notið hafa vinsælda víða um heim og kallast An Idiot Abroad eða Fífl á ferðalagi eins og ritstjórn Fararheill kýs að þýða það.
Pilkington er tákngervingur hins vitgranna einstaklings sem enga hefur hugmynd eða forvitni um hvað er að gerast annars staðar en í hans litla heimi. Sem er ástæða þess að hinir bráðfyndnu Ricky Gervais og Stephen Marchants, hvers vinur Pilkington er í raunveruleikanum, senda hann til að skoða helstu undur heimsins og upplifa í leiðinni lífið hjá heimamönnum á hverjum stað fyrir sig.
Þættirnir eru bæði afar vel gerðir og fyndnir því Pilkington sjálfur er saga út af fyrir sig en Sky sjónvarpsstöðin sem þættina framleiðir hefur líka lagt töluvert í gerð þeirra. Til að mynda nægir þeim félögum Gervais og Marchand ekki að senda Pilkington til að skoða Kínamúrinn í dag eða svo. Nei, Pilkington skal skoða ALLAN Kínamúrinn og það að hluta til labbandi. Með tilliti til að söguhetjan nennir varla út að dyrum til að sækja póstinn heima hjá sér er þetta ávísun á urrandi skemmtun.
Eru þættirnir átta talsins enn sem komið er en þegar upp er staðið er þó sýnu merkilegast að sjá hvernig Pilkington sjálfur virðist taka út sífellt meiri þroska þátt eftir þátt. Hann virðist öðlast þekkingu og fróðleiksþorsta en engan veginn þjakaði hann áður fyrr.






