Nokkur meirihluti þeirra sem svöruðu þeirri spurningu á vef Fararheill.is hvort íslenskir fjölmiðlar hefðu að undanförnu farið offari í fréttaflutningi af töfum hjá Iceland Express eru á þeirri skoðun að svo hafi ekki verið.
Sem flestum er kunnugt hafa ýmis vandamál plagað Iceland Express um tíma og hefur ítrekað verið fjallað um það sem miður hefur farið að undanförnu í íslenskum fjölmiðlum. Ýmsum hefur þótt nóg um.
Fararheill lagði fyrir lesendur sína þá spurningu hvort fjölmiðlar hefðu að þeirra viti farið fram af meira kappi en forsjá í umfjöllun um flugfélagið að undanförnu. 61 prósent telja ekki að svo hafi verið og eðlilegt að málum staðið.
33 prósent töldu þó að svo hefði verið og miklu meira gert úr vandræðum flugfélagsins en efni hefði staðið til. Tæp sex prósent tóku ekki afstöðu til eða frá.
Ritstjórn Fararheill.is þakkar þeim 122 einstaklingum sem þátt tóku en tekur fram að ekki er um vísindalega könnun að ræða af neinu tagi.






