Tíðindi

Ferðaviðvörun loks gefin út vegna Egyptalands

  31/01/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Viku eftir að harkaleg og blóðug mótmæli hófust í Egyptalandi og í Kaíró þá sérstaklega kemur loks aðvörun frá íslenska utanríkisráðuneytinu þess efnis að ferðalög til Egyptalands séu kannski ekki svo ýkja góð hugmynd.

Hefur ráðuneytið þarna sannarlega puttann á púlsinum enda nokkrir dagar síðan önnur erlend ríki vöruðu þegna sína við ferðalögum til Kaíró. Vöruðu til dæmis Japan, Ástralía og Bandaríkin við ótryggu ástandi fyrir helgi.

Fær ráðuneytið klárlega falleinkunn fyrir að vara ekki mun fyrr við ferðalögum þangað enda berast fregnir af því að um 20 Íslendingar séu í landinu og þar af einir 17 einstaklingar í Kaíró. Þegar hefur einn þeirra, fréttamaður RÚV á svæðinu, orðið fyrir árás heimamanna.