Ekki er ólíklegt að þessa stundina séu stöku einstaklingar, í flestum tilvikum karlmenn, að missa sig í stressi í verslun enda nokkrar gjafir enn eftir og tíminn af skornum skammti. Þeir eru sennilega að fara langt yfir skammt eftir heppilegri gjöf.

Flug til Barcelona er æði ljúf jólagjöf fyrir flesta. Mynd trombone65

Flug til Barcelona er æði ljúf jólagjöf fyrir flesta. Mynd trombone65

Það er auðvelt að færa rök fyrir því að besta jólagjöfin þessa stundina sé flugferð til Barcelona. Það er flugfélagið Wow Air að bjóða til miðnættis en spænska flugfélagið Vueling er einnig að selja ferðir þennan tíma aðra leið á svipuðu verði eða milli 14 og 15 þúsund krónur.

Miðað við reynslu fyrri ára verður að telja vonlítið að fargjöld til þeirrar ágætu borgar finnist á lægra verði en þetta. Úttektir Fararheill síðustu árin sýna að strax í byrjun febrúat eru flugferðirnar aðra leiðina farnar að skjaga langleiðina í 30 þúsund krónur. Það er því í raun verið að gefa dýra gjöf á vægasta verði. Gjöf sem er upplifun í þokkabót.