Það skal engan undra að einhverjir mest heillandi staðir í heiminum eru oft yfirgefnir mannabústaðir hvar sem þeir nú eru.

Framúrstefnuhverfi sem varð fortíðinni að bráð. San Zhi. Mynd Noelas H.
Hvort sem um er að ræða galtóma borgina Pripyat í nágrenni Chernobyl í Úkraínu eða Stöng í Þjórsárdal þá hafa flestir slíkar staðir mikið aðdráttarafl enda bæði tákn um að mannkynið hefur ekki alltaf svör við öllu og ekki síður að flestir hlutir mannsins úreldast fyrr eða síðar.
Einn merkilegasti og vinsælasti ferðamannastaðurinn á Tævan er einmitt draugabær með framtíðarsniði. San Zhi heitir sá og liggur í norðurhluta landsins. Sá var byggður sem afrep fyrir ríka þegna landsins og ekkert til sparað enda sést á myndinni að um sannarlega framtíðarsýn var að ræða.
Byggingu svæðisins var þó hætt eftir fjölmörg banaslys við framkvæmdirnar og þegar til átti að taka að nýju var enginn áhugi né peningar til verksins. San Zhi situr því eyðileg og tóm ef frá er taldir ferðamennirnir sem þangað sækja. Sterk trú er meðal nágranna að draugar þeirra sem létust við framkvæmdirnar sitji og gæti yfir rústunum.

Alls eru hér um 200 slíkar byggingar. Allar tómar og að hrynja. Mynd Noelas H.




