Ritstjórn Fararheill er fremst í flokki þeirra sem vilja sem meira úrval hjá ferðaskrifstofunum. Það er einfaldlega ekki allra að sleikja sólina á Mallorca, Almería, Costa del Sol eða Kanaríeyjum lon og don út og suður.

Einstök ferð segja bændur hjá Úrval Útsýn en ekkert bendir til að svo sé.
Þess vegna er óhætt að lofa ferðaskrifstofuna Úrval Útsýn svona einu sinni fyrir að reyna að bjóða upp á safaríkari og óvenjulegri sérferð en venjulega: til Granada í Andalúsíu. Vikuferð þangað með fararstjórn hefur verið í boði um hríð en illu heilli er þátttaka dræm og nú örfáum sólarhringum fyrir brottför er ferðaskrifstofan enn að reyna að selja sæti í ferðina. Án þess þó að lækka verðið um krónu.
Við höfum stúderað þessa ferð Úrval Útsýn og án þess að við höfum minnsta áhuga að leiðbeina Pálma Haraldssyni, stórsvindlara með meiru, um rekstur, getum við ekki annað en skotið nokkrum punktum að þeim unglingum sem markaðssetja ferðir hjá þessari ferðaskrifstofu. Svona ferðakynningar 101…
Svo hljóðar kynningin á ferðinni:
Einstök ferð til Granada 01.-08. september. Ein fegursta borg Spánar með Fjalari Ólafs. Aðein 89.900 kr. á mann í tvíbýli.
Svo þetta:
Einstök ferð fyrir þá sem vilja njóta njóta menningar, arkitektúrs, sögu og orku stórborgar en á sama tíma eiga kost á slökun við sundlaugina.
Og svo þetta:
Innifalið í verði ferðar:
- Flug
- Rúta til og frá flugvelli erlendis
- Hótel með morgunverði í 7 nætur
- Íslensk fararstjórn
- Gönguferð um Granada með fararstjóra
Ekki innifalið í verði ferðar:
- Valfrjálsar kynnisferðir
- Máltíðir
- Drykkir með mat
- Aðgangseyrir í söfn
Fararstjóri: Fjalar Ólafsson
Einhver hefði haldið að fyrst ferðaskrifstofan hafði fyrir því að setja upp sérferð þá væri kannski áhugi á að kynna ferðina betur en með sama innihaldslausa hjali og notað er til að auglýsa ALLA áfangastaði Úrval Útsýn.
Við tökum þetta eftir röð.
A) Ferðalýsing er engin. Aðeins fjallað um hinn kostulega Márakastala Alhambra á vef Úrval Útsýn.
B) Hvers vegna er þetta einstök ferð? Hvað er einstakt við hana?
C) Hver er Fjalar Ólafs?
D) Hvers vegna er ekki tekið fram að flogið er til Almeria en ekki Granada? Það tekur jú tæpar tvær klukkustundir að aka frá Almeria til Granada sem aftur merkir að sökum þess hve seint er flogið þann 1. september þá er sá dagur ónýtur fyrir áhugasama. Fólk komið á hótel rétt fyrir 23 fyrsta kvöldið. Þetta er því í raun SEX daga ferð en ekki sjö.
E) Hótelið er fjögurra stjörnu en fær lágar einkunnir þrátt fyrir það eins og sjá má á hótelvef okkar hér að neðan.
F) Hvar eru þessar „valfrjálsu“ kynnisferðir og hvað kosta þær? Engar slíkar finnast á vef ÚÚ.
G) Hvaða sérstöku orku er að finna í Granada? Sólarorku? Þar er jú meðalhiti í byrjun september AÐEINS 28 gráður yfir daginn. Sem aftur merkir að Íslendingar hafa enga orku í labberí hingað og þangað. Fólk svitnar af því einu að vakna.
H) Ein fegursta borg Spánar? Segir hver? Fararheill ósammála þessu. Granada er einmitt ekki mjög fögur þó konungshöllin Alhambra sé það sannarlega.
I) Fram kemur í smáa letrinu að „Fjalar Ólafs“ sé farþegum ÚÚ til Tenerife að góðu kunnur enda verið fararstjóri þar um áraraðir. En hinir sem ekki hafa dvalið á Tenerife með Úrval Útsýn? Og hvað gerir bráðungan fararstjóra á Tenerife að sérfræðingi í Granada?
J) Auglýst verð er 89.900 krónur á mann. En þegar farið er áfram í bókunarvél Úrval Útsýn bætist ofan á þetta óendurkræft bókunargjald sem hækkar verðið.
Og svo eru menn hjá Úrval Útsýn hissa að ekki seljist grimmt í þessa ferð… Annaðhvort að gera þetta af ástríðu eða sleppa því takk.







