Tíðindi

Fer veðrið með Ólympíuleikana í London?

  15/07/2012desember 16th, 2013No Comments

Skipuleggjendur Ólympíuleikanna sem hefjast í London í lok júlí hafa gert ráð fyrir öllum fjandanum og telja sig færa  í flestan sjó. Eitt getur þó auðveldlega sett leikana á annan endann án þess að nokkur fái rönd við reist. Breska veðrið.

Tvær vikur í Ólympíuleikana í London og rigning sjaldan eða aldrei verið meiri en þetta sumarið

Ekki hefur farið fram hjá þeim er með fréttum fylgjast að veðurfar á Bretlandseyjum þetta sumarið hefur verið það blautasta síðan áreiðanlegar mælingar hófust árið 1910. Þannig var síðastliðinn júní sá allra blautasti frá því ári og fyrstu tólf dagarnir í júlí benda einnig til að regnmet séu í hættu.

Hefur enda rigning sett strik í reikninginn velflestra viðburða sem haldnir hafa verið sunnarlega í Englandi og nægir þar  að nefna Drottningarafmælið, Wimbledon tenniskeppnina og Glastonbury tónlistarhátíðin var einn vatnspollur.

Eru þetta fyrstu Ólympíuleikarnir sem fram fara svo norðarlega á hnettinum síðan árið 1980 þegar leikarnir voru haldnir í Moskvu.

Allar götur síðan hafa leikarnir farið fram í töluvert heitari löndum en Englandi og að mestu vandræðalaust.

Það er því töluverð ástæða fyrir þá Íslendinga sem leið sína leggja til London á næstunni að pakka eins og einni regnhlíf með.