Tíðindi

Mínus í kladda Plúsferða

  16/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Hætt er við að einhverjir myndu reka upp stór augu ef Bónus eða Krónan auglýstu sértilboð á útrunnu hakki eða lambaskönkum í verslunum sínum og hvettu fólk til að grípa gæs. Það er nákvæmlega það sem ferðaskrifstofan Plúsferðir gerir nú í dag með heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu.

Þar auglýsir ferðaskrifstofan „Ótrúlegt verð til Alicante“ í maí og vísar til sértilboða á flugi til og frá Alicante á Spáni. Að því frátöldu að ekkert sérstaklega ótrúlegt er við 58.900 króna verðið fyrir flug fram og til baka er ferðaskrifstofan að auglýsa ferðir þann 12. og 14. maí.

Einhver þarf að benda Plúsfólki á að búið er fyrir nokkru að finna upp dagatöl og 12. og 14. maí eru nú hluti af fortíðinni.

Auglýsingu Plúsferða má sjá hér að neðan en sjálf auglýsingin er skelfilega hryllileg í alla staði og er þó niðurgreidd af ferðamálaráði Spánar.

Af henni að dæma er til dæmis engin náttúrufegurð í héruðum og sveitum nálægt Alicante heldur aðeins kringum þau. Þá eru víst óþrjótandi möguleikar á ferðalögum frá Alicante…

Sértilboð til Alicante 12. og 14. maí auglýst í Fréttablaðinu í dag 16. maí