Hætt er við að Walt Disney snúi sér töluvert við í gröfinni þessi misserin. Fyrirtækið sem ber nafn hans hækkar linnulítið gjaldið inn í hinn fræga Disneyworld í Orlandó Flórída.

Fjarri því gefið að skemmta ungviðinu í skemmtigarði Disney á Flórída

Það kemur ekki á óvart hjá risafyrirtæki en gengur þvert á hugmyndir Walt Disney á sínum tíma sem tiltók það sérstaklega að skemmtigarðar Disney yrðu ávallt auðveldlega aðgengilegir fyrir bandaríska meðalfjölskylduna. Kannski þess vegna hefur stjórn Disneyworld nú hækkað aðgöngumiða sína í sjötta skipti á síðustu átta árum.

Síðasta hækkunin var gerð opinber í liðnum mánuði og nú er um þrenns konar aðgöngumiða að ræða inn í garðinn fræga: Lágannamiði, meðalmiði og háannamiði. Dýrastur er háannamiðinn og það gjald í gildi á öllum helstu frídögum bandarískum plús jól og páska og aðra tyllidaga þegar almenningur er ekki fastur í vinnu.

Nú þarf einstaklingur, 10 ára og eldri, að greiða sem nemur 13.570 krónur fyrir dagsmiða í garðinn á annatíma plús tæpan þúsund kall í viðbót vilji fólk heimsækja töfrakonungsríkið Magic Kingdom. Alls því 14.400 krónur per haus eða 57.600 krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Sæki sama fjölskyldan garðinn heim utan annatíma þarf samt að punga út 46 þúsund krónum eða svo.

Það fer auðvitað eftir fjárhag hvers og eins hversu dýrt eða ódýrt þetta þykir en líklega er óhætt að fullyrða að 50 þúsund krónur eru ekki dregnar upp úr vasa allra sísona fyrir dagsstund með Guffa og Mikka og Andrési og öðrum fígúrum. Fyrir utan þá staðreynd að familían þarf jú að nærast og í tilfellum greiða aukagjald í sérstök tæki og tól meðan á heimsókninni stendur. Þar bætast auðveldlega tíu þúsund krónur við að lágmarki fyrir fjölskylduna.

Ágætt að hafa í huga ef Disneyworld er á óskalistanum meðan dvalið er í Orlandó á næstunni.