Sumir dagar eru einfaldlega verri en aðrir. Það á líka við um flugfélagið Wow Air eða nánar tiltekið fjölmarga farþega þeirra sem fá verri þjónustu en enga og láta í sér heyra á samfélagsmiðlum.

Þótt Wow Air hafi lokað fyrir öll ummæli viðskiptavina á fésbókinni sökum linnulausra kvartana út í eitt þá getur flugfélagið ekki lokað á kvartanir annars staðar. Af þeim að dæma fer fjarri lagi að þjónusta Wow Air sé að batna eins og forsvarsmenn halda gjarnan fram í drottningarviðtölum. Þvert á móti eiginlega og við dauðvorkennum öllu þessu fólki.