S jaldan öll vitleysan eins í tíu vindstigum og jafnvel í logni líka. Ferðamálastofa eyðir nú formúgum skattfjár til að benda áhugasömu ferðafólki á að hótel og veitingastaðir á Fróni þrífi nú allt hátt og lágt 24/7 til að fólk veikist nú ekki og upplifi hamingjuna.

Fararheill.is hefur fengið vottun þessa efnis eins og sjá má á opinberum stimplunum hér að neðan:

Nema að við höfum ekkert fengið eina einustu vottun frá opinberum aðilum. Það hafa heldur engin af hótelum eða veitingastöðum landsins. Þetta „vottorð” Ferðamálastofu er jafn mikið feik og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

„Vottorðið” á að merkja að: ferðaþjónustuaðilar taki á ábyrgan hátt á móti viðskiptavinum sínum þannig að þeir upplifi sig örugga um leið og þeir skapa góðar minningar.

Gott mál í gulum umbúðum. Nema ef vera skyldi að eftirlit og eftirfylgni er ENGIN! Ferðaþjónustufyrirtækjum er í sjálfsvald sett að fylgjast með eigin gjörðum og geta þess vegna rekið alla starfsmenn, hafið söfnun á ryki í öllum herbergjum og þrifið ekki neitt og samt gortað sig af þessum fínu vottorðum um heilbrigði og þjónustu.

Alls engin dæmi um það í veraldarsögunni að misjafnt fé, sem ferðaþjónustuaðilar eru, brúki flott vottorð sísona til að þykjast. Eða hver man ekki eftir Hótel Adam á Skólavörðustíg 😉

Spurning um að fara að reka einhvern hjá Ferðamálastofu fyrir að leggja blessun yfir slíkt rugl…