
Lítur þetta ekki bærilega út? Ein af þúsundum toppstranda Kólombíu.
Albeit, ekki heiglum hent að skottast þangað svona almennt talað og allra síst nú á tímum Kófsins.
En svo sannast hið fornkveðna að góðir hlutir koma til þeirra sem bíða. Í þessu tilfelli eftir að Icelandair hefji aftur áætlunarflug til Washington DC í Bandaríkjunum sem er að fara að gerast á næstu vikum þegar þetta er skrifað.
Ástæðan sú að ef þú kemst til Washington DC án þess að selja úr þér lungun á svarta markaðnum, og það er mögulegt í sumar, þá er flaggflugfélag Panama, Copa Airlines, að bjóða sérdeilis fín kjör á flugi þaðan til Kólombíu í sumar, haust og vetur. Eða hvernig hljómar flugið fram og aftur með stuttu stoppi í Panama, fyrir svo mikið sem 36 þúsund krónur?
Ofan á það fína tilboð er hægt að finna flug með Icelandair til Washington DC í sumar niður í 60 þúsund krónur á sardínufarrými þegar þetta er skrifað. Sem merkir auðvitað að kósíheit í Kólombíu eru okkar fyrir rúmlega 90 þúsund krónur á mann.
Það ekki amalegt fyrir þrjátíu stunda flug fram og aftur alla leiðina. Og ef einhverjum finnst miðinn dýr er ágætt að hafa bak eyra að allt þetta venjulega í Kólombíu kostar slikk og ingenting. Eða hvernig hljómar stór bjór á bar fyrir 130 kallinn? Og svo framvegis og svo framvegis…
Tilboðið atarna finnst á Skyscanner.com. Veldu dagsetningar frá ágústlokum og voilà!







