V iðskiptamogginn greinir frá því þennan daginn að heimildir séu fyrir að fyrstu rellur Play muni loks svífa til himins í júnílok.

Það virðist sjást til lands hjá Play. Mynd Play

Ljómandi ef satt reynist en eftir allnokkrar slíkar tilkynningar síðustu misserin tökum við slíku með salti, pipar og bernaisesósu líka.

Þetta er þó príma tími til að skjóta rellum á loft því loks er almennileg hreyfing komin á bólusetningar hérlendis og víðast hvar í nágrannalöndum en mörg lönd krefjast bólusetningar við komu og þær kröfur verða sterkari eftir því sem fram líða stundir. Það er nefninlega æði algengt að fólk sem mælist neikvætt við komu er svo orðið veikt nokkrum dögum síðar þannig að neikvætt vottorð frá lækni fyrir brottför er ekki ýkja merkilegt plagg þegar alheimsfaraldur er annars vegar.

Vonandi rætast þessar heimildir Mbl og Play fer að bjóða samkeppnishæf fargjöld út í heim. Það farið að taka á taugar margra að komast hvorki lönd né strönd.