Nivea er eitt allra þekktasta merki í snyrti- og húðvörum hérlendis og víðar. Vart til það íslenska apótek eða snyrtivöruverslun sem ekki selur vörur þessa risa. Það ekkert breyst þrátt fyrir að Fararheill hafi um átta ára skeið greint frá niðurstöðum norsku neytendastofnunarinnar, Forbrukeradet, sem sýna svart á hvítu að ýmsar vörur þessa stórfyrirtækis eru súper-vafasamar.
Ólíkt hinni íslensku Neytendastofu, sem aldrei nokkurn tímann rannsakar nokkurn skapaðan hlut sem máli skiptir, er sú norska þokkalega á tánum. Þeir norsku hafa um tæplega tíu ára skeið rannsakað, á hlutlausri rannsóknarstofu, hvort vinsælar sólarvörur virka eða hvort þær vörurnar hafi kannski jafnvel neikvæð áhrif á þá sem nota.
Tekið skal fram að sólarvörn fyrir fölbleika Íslendinga er ekkert minna en bráðnauðsynlegt til að vernda stærsta líffæri líkamans þegar sól er hátt á lofti: húðina. En það er ekki sama hvaða vörn þú berð á þig samkvæmt hinum norsku vísindamönnum. Fjarri því.
Áttunda árið í röð hafa þeir norsku komist að því að sumar sólarvörur Nivea valda hormónaójafnvægi og valda hugsanlega ofnæmi hjá notendum plús að þær hafa neikvæð áhrif á umhverfið. Lesa má um það hér í nýjustu rannsókn þeirra norsku.
Sólarvörn er möst en ekki hvaða sólarvörn sem er…
Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉