Nú eru liðnar tvær vikur síðan alvarlegt atvik setti strik í áætlunarferðir Wow Air til og frá landinu. Enn eru þó umtalsverðar tafir hjá flugfélaginu.

Eina brosið hjá Wow Air núna er á vélum félagsins. Viðskiptavinir frekar fúlir.

Eina brosið hjá Wow Air núna er á vélum félagsins. Viðskiptavinir frekar fúlir.

Þennan daginn, þriðja október, er minnst tveggja stunda seinkun á brottförum frá Keflavík samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar og reyndar vel yfir þriggja stunda töf á brottför til London. Tafir hafa nú verið nánast daglegt brauð um fimmtán daga skeið. Þá er, þegar þetta er skrifað, enginn staðfestur komutími á vélum félagsins frá Kaupmannahöfn eða London sem eiga samkvæmt áætlun að lenda um klukkan 14.

Sem fyrr er engar upplýsingar um tafirnar að finna á samfélagsmiðlum Wow Air né heimasíðu flugfélagsins. Sem er bagalegt því þjónustuver Wow Air um helgar er keyrt á lágmarks mannskap og erfitt eða vonlaust að fá upplýsingar í fljótu.

Það er því full ástæða fyrir viðskiptavini að hafa sérstaklega augun hjá sér áfram svo ekki þurfi að dvelja klukkustundum saman á flugvöllum eða ef ferð er fram haldið með tengiflugi. Auðvitað líka að muna að hugsanlegar bætur fara að tikka um leið og lent er þremur stundum eftir áætlun.