Það er ekki af einum helsta markaðsmanni Íslands skafið að sá kann að koma árinni fyrir borð jafnvel þó hans helsti dallur sé sokkinn.

Andri Már Ingólfsson segist voða sorrí fyrir hönd hundruða starfsmanna Primera Air sem lepja dauðann úr skel en brúkar svo tugmilljónir sísona til að kaupa fullt af ferðaskrifstofum. Skjáskot
Ráðagjörðir Andra Más Ingólfssonar, aðaleiganda Primera Travel Group, fóru fyrir lítið þegar stórhuga hugmyndir hans um að græða milljarða króna á beinu flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna enduðu í gjaldþroti flugfélagsins Primera Air.
Samkvæmt fregnum skiptastjóra er varla til króna í þrotabúi Primera Air. Þar rétt nægir peningar til að kaupa kaffi og kleinur fyrir staffið í tvo sólarhringa eða svo. Hundruð illa launaðra starfsmanna skildir eftir hjá Guði og gaddinum og þurfa að sækja rétt til gegnum dómstóla svo ekkert sé minnst á þúsundir viðskiptavina sem keyptu kött í feitum sekk.
Í ljósi þessa kemur á óvart að eigandinn sjálfur situr á milljörðum króna sem mannfjandanum dettur ekki í hug að brúka til að aðstoða það „frábæra starfsfólk” sem þó hélt Primera Air á floti þann tíma sem það flugfélag hafði efni á flugi.
„Sárast er þó að sjá þetta uppbyggingarstarf hverfa fyrir allt þetta góða starfsfólk sem hefur unnið að þessu þetta lengi,“ sagði Andri Már í byrjun mánaðarins og lét líta út fyrir að honum væri ekki slétt sama um starfsfólkið.
En þessi ákveðni Andri Már er grynnri en sundlaugin að Reykjum. Ekki fyrr hefur kappinn grátið hræðileg örlög starfsfólks síns en hann sísona kaupir upp allar ferðaskrifstofur sem tilheyrðu Primera Travel Group. Alls sex eða sjö ferðaskrifstofur með húð og hári.
Þetta á sama tíma og illa launað starfsfólk Primera Air þarf að leita til stjórnvalda í hinum og þessum löndum til að lifa af og fæða og klæða sig og sína.
Leyfist okkur að segja að Andri Már Ingólfsson sé einhver skítlegasta persóna sem Ísland hefur alið og er þó nóg af samkeppni á þeim skalanum. Þjóðráð að fylla ekki vasa þessa manns með því að eiga ENGIN viðskipti við Heimsferðir.







