Hætt er við að ferðaskrifstofan Heimsferðir hafi annaðhvort sagt upp of mörgum starfsmönnum eða að þjónustustiginu er verulega ábótavant. Heimasíða ferðaskrifstofunnar hefur ekki verið uppfærð síðan í sumar.
Er þetta klár mínus í kladdann hjá Heimsferðum enda verið að afvegaleiða viðskiptavini með slíkum starfsháttum. Þannig eru til að mynda í boði einir fimm áfangastaðir undir heitinu sólarferðir á vefsíður Heimsferða en samkvæmt bókunarvélinni eru aðeins tvær sólarferðir í boði.
Tvær gönguferðir eru í boði samkvæmt vefnum en hvorug finnst í bókunarvél. Fjórar sérferðir finnast alls ekki. Þá eru engir bókunarmöguleikar undir liðnum „aðeins flug“ á bókunarvél ferðaskrifstofunar.






