Fáum ætti að koma á óvart að eina keppni heims sem kennd er við kannabis fer fram í Amsterdam í Hollandi. Heldur ætti engum að koma á óvart að keppnin atarna er vinsæl mjög og er nú haldin 23. árið í röð.
Keppnin er á milli þeirra „kaffihúsa“ sem kannabis selja og er þar keppt í nokkrum flokkum. Besta grasið, besta marijúanað, bestu fræin og ekki er síður samkeppni um besta hampinn og gripi úr hampi.
Yfir 400 „kaffihús“ borgarinnar hafa leyfi til hasssölu og tekur meginþorri þeirra þátt. Fyrir þá sem taka kannabis alvarlega (eða ekki) er hægt að kaupa dómarapassa sem gefur frían aðgang að öllum vörum þeirra kaffihúsa sem þátt taka.
Heimasíða hátíðarinnar hér.



