Að svo stöddu eru ekki uppi nein áform af hálfu flugfélagsins Icelandair að gefa farþegum sínum tækifæri til að tengjast netinu meðan á flugi stendur. Er þetta svarið við fyrirspurn Fararheill.is en vestanhafs sérstaklega er slík þjónusta víða í boði.
Lék ritstjórn forvitni að vita stöðu mála hér enda Íslendingar löngum verið framarlega í flokki með nýjungar á borð við þessar.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi flugfélagsins, segir vel fylgst með þróun hvað þetta varði. Ljóst sé að kostnaður við netsamband yfir úthöfunum fari lækkandi með sífellt betri búnaði og lítill vafi leiki á að sú þróun haldi áfram. Engar ákvarðanir um nettengingar í vélum Icelandair hafa þó verið teknar.






