Tíðindi

Frí gisting fyrir kynlíf

  12/11/2010maí 31st, 2014No Comments

Mannsandinn getur lagst ansi lágt á stundum og það á sennilega við um um hóteleigandann sem hyggst bjóða öllum pörum ókeypis gistingu við fyrsta flokks aðstæður svo lengi sem þau stunda kynlíf í herbergi sínu og leyfa af því upptökur.

Hefur málið vakið athygli en það er einmitt það sem Berth Milton yngri vill en það er hann sem hyggst setja á stofn keðju lúxushótela þar sem frí gisting verður í boði fyrir upptekið kynlíf. Hyggst hann láta greiðandi viðskiptavini sína greiða fyrir herlegheitin en Milton vill meina að meirihluti gesta á hótelum kaupi sér aðgang að klámrásum sem boðið er upp á og að þeir vilji fremur greiða fyrir að sjá parið í næsta herbergi en glenntar uppástrílaðar puntudúkkur frá Playboy.

Milton veit sennilega hvað hann talar um því hann hefur efnast gríðarlega á framleiðslu klámmynda. Samkvæmt New York Post ætlar kauði að opna fyrstu hótelin sín í New York borg.