Ekkert lát er á fregnum um vandræði vegna hinna nýju líkamsskanna sem eru nú í notkun víða í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Þykir víst að skannarnir, sem sýna nakinn líkama ferðalangsins, brjóti margvísleg lög og sáttmála og þrátt fyrir yfirlýsingar um annað hafa myndir úr slíkum skönnum ítrekað komist í almenna umferð.
Ekki síst þykir það brjóta barnaverndarlög að láta börn fara gegnum slíka skanna og hafa bresk yfirvöld glímt við þetta vandamál um tíma án þess að lausn hafi fundist. Ekki aðeins sjást börnin þar allsnakin heldur þykir enn verra að sjáist eitthvað gruggugt ber öryggisvörðum skylda til að framkvæma ítarlega líkamsleit.
Hafa gagnrýnisröddum fjölgað vegna þessa og jafna margir slíku við bæði barnaklám og kynferðislegt ofbeldi. Sé enda öryggisvörðum í Bandaríkjunum sérstaklega nú gert að leita vandlega á farþegum og þar með talið að fara vel yfir klof og rassa.






