Aldrei verið leiðinlegra að koma heim til Íslands. Bíllinn galtómur af bensíni og tvær stundir tók að heimsækja lögreglustöðina, fylla út skýrslu og dæla eldsneyti á bílinn áður en hægt var að komast áleiðis.

Svo virðist sem bensínstuldur sé nokkurt vandamál við Leifsstöð. Mynd Leifsstöð
Svo skrifar kona ein sem varð fyrir þeirri leiðinlegu lífsreynslu að öllu eldsneyti var stolið af bíl hennar meðan sá stóð á langtímastæði við Leifsstöð nýverið.
Slíkt virðist ekki algengt sé mið tekið af því að hvergi finnast greinar í fjölmiðlum um að bensínþjófnaður við Leifsstöð sé vandamál. Þetta er hins vegar fjórða ábendingin til okkar þessa efnis á árinu.
Í öll skipti var um bifreiðar að ræða sem geymdar voru á langtímastæði við Leifsstöð í viku eða lengur og allir komu eigendurnir að bensínlausum bílum að ferð lokinni þó töluvert eldsneyti hafi verið í tönkum fyrir brottför. Akkurat það sem vantar eftir langt og þreytt ferðalag. Ekki síst þegar kostnaður við bílastæðið fyrir vikutíma nemur tæplega níu þúsund krónum.

Dýr er dvölin fyrir bíltíkina og ekki er nein gæsla innifalin. Skjáskot
Ef marka má vef Leifsstöðvar er engin gæsla á langtímastæðum heldur er gjaldið aðeins fyrir stæðið eitt og sér og ekkert umfram það.
Þetta skiptir helst máli varðandi minni bíla og eldri sem ekki er búnir nýjustu þjófavörn en það er reyndar með slíkt eins og annað tæknidót að alltaf finnast hjáleiðir séu vanir menn á ferð. Svo er víst ábyggilegt að laun þeirra sem sjá um bílastæðin eru varla mannsæmandi. Alltaf tækifæri í slíku fyrir misyndismenn.
Kannist þið þarna úti við fleiri svona dæmi? Endilega látið okkur vita. Hinir ættu að hafa varann á sér. Ekki síst nú þegar eldsneytisverð fer hratt hækkandi á ný.







