Stór hluti Ný-Sjálendinga hefur kveikt á perunni til betra lífs. Ný könnun þar í landi sýnir að flestir aðspurðra kusu fremur að eyða peningum í ferðalög en í verslunum.

Lífsfylling finnst ekki í verslunum. Sífellt fleiri að uppgötva það. Mynd Manuel M.Almeida

Lífsfylling finnst ekki í verslunum. Sífellt fleiri að uppgötva það. Mynd Manuel M.Almeida

Kortafyrirtækið American Express, AE, framkvæmdi könnun á því hjá þúsund einstaklingum hvað þeir myndu helst vilja gera ef 80 þúsund krónur féllu þeim í skaut sísona. Langflestir, 31 prósent, ætlaðu að brúka þá aura í ferðalög. Aðrir í úttekt AE hugðust greiða niður skuldir, kaupa hluti og restin vildi lagfæra heimili sitt og garð.

Fram kemur í gögnum AE vegna þessa að skýr merki megi sjá að þeim fjölgar hratt sem ferðast sér til yndisauka á kostnað þeirra sem sanka að sér vörum og glingri. Að hluta til megi rekja það til aukinnar samkeppni í flugi og lægri flugfargjöldum en ekki síður megi af gögnum ráða að yngra fólk sérstaklega geri sér betur grein fyrir að lífsfylling fæst ekki með fleiri hlutum og nýrra drasli heldur lífsreynslu.

No shit, Sherlock 🙂