Flugfélagið Icelandair er með hæstu eldsneytisgjöld þeirra flugfélaga sem hingað til lands fljúga og það þrátt fyrir að hafa mjög nýlega lækkað gjöld sín töluvert.

Gamlar rellur Icelandair nýta alls ekki eldsneyti vel en skýrir það himinnhátt eldsneytisálag flugfélagsins?
Þetta sést glögglega á meðfylgjandi töflu sem Fararheill hefur tekið saman en þar berum við saman eldsneytisgjöld nokkurra flugfélaga á styttri flugleiðum en gjaldið er annað og hærra þegar um lengri leiðir er að ræða. Lengri leiðir í þessu tilfelli sex klukkustundir plús. Taflan á því aðeins við um flug sem er styttra en það og gildir því um allar flugferðir til Evrópu til að mynda.
Það var ferðavefurinn túristi sem sagði fyrst frá eldsneytislækkunum Icelandair fyrir skömmu og tóku velflestir miðlar landsins það upp í kjölfarið og fannst mikið til koma. Túristi er sami aðili og virðist ekki hafa ferðast neitt annað en til þeirra áfangastaða sem Icelandair býður upp á. Sem ætti að hringja bjöllum hjá hugsandi blaðamönnum en gerir ekki. Ekki vakti neina athygli þessi frétt Fararheill um langtum hærra eldsneytisgjald Icelandair en annarra. Né þessi heldur og þaðan af síður þessi.
Eitt atriði gæti mögulega varpað ljósi á þörf Icelandair á gríðarlega háu eldsneytisálagi er sú staðreynd að félagið er að fljúga eldri vélum en allir aðrir sem fljúga til og frá Íslandi og í flestum tilvikum mikið eldri. Vélar Icelandair voru framleiddar löngu áður en sparneytni komst í tísku og ekki bætir úr skák að flugfélagið bætir sífellt ofan á þunga vélanna með netsambandi, afþreyingarkerfi og rafmagnsaðgangi til að vera samkeppnishæfir. Ekkert slíkt var í vélum Icelandair upphaflega.
Fararheill hefur áður og ítrekað bent á að eldsneytisgjöld Icelandair hafa verið hærri en allra annarra um langa hríð. Jafnvel Iceland Express sem um tíma flaug sínar ferðir á svipað gömlum vélum setti töluvert lægra eldsneytisálag á sína flugmiða.
Tvö flugfélög innheimta ekkert sérstakt eldsneytisgjald. Það eru Wow Air og easyJet en þar með er ekki sagt að það sé ekki álag á eldsneyti hjá þeim flugfélögum. Þau fela það bara inni í verði sínu og veita ekki upplýsingar um annað.
Að síðustu þá eru flugfargjöld almennt talað algjör frumskógur og ekki fyrir nokkurn mann að reyna að komast til botns í hvernig þau eru reiknuð eða hvort verið sé að svindla á fólki eða ekki. Spekingar vestanhafs sem halda úti flugbloggum og vefum eru margir ekki í vafa um að það sem kallað er eldsneytisgjald er tómt yfirskin. Því til sönnunar er stundum bent á að til að mynda Delta Airlines breytir eldsneytisgjaldi sínu nokkuð eftir þörfum hverju sinni. Með því að hækka það er til dæmis hægt að auglýsa mun lægri flugfargjöld því oftast nær eru þau auglýst án þess gjalds. Ekki ósvipað og Wow Air gerir með bókunargjald sitt sem aldrei er auglýst en enginn fer í loftið án þess að greiða.







