
Óformlegt hjá Play. Skjáskot Twitter
Rákumst á þessa mynd hér til hliðar á Tístinu þennan daginn og allt bendir til að þarna sé kominn vinnugalli karlkyns flugþjóna lággjaldaflugfélagsins Play en þeirra fyrsta rella fer í loftið í lok þessa mánaðar.
Nettur bleiser, buxur í stíl, svartir sokkar, nærbolur og hvítir strigaskór. Punktur!
Enginn úr ritstjórn hér með sérstaka skoðun á fatnaði þeim sem flugþjónum er gert að klæðast í vinnu sinni á heimsvísu. Nema kannski að margir þessir hefðbundnu formlegu flugbúningar virðast á köflum ekki vera þægilegustu klæðin í þröngum rýmum millilandavéla.
Að því leytinu virðist þessi klæðnaður boðlegur. Temmilega fansí, temmilega léttur og þægilegur. Fábrotið og einfalt með öðrum orðum.
Örlítið verra þó að ef mjög heitt verður um borð er líklega ekki í boði á henda jakkanum og rúlla um á nærbolnum. Sömuleiðis þarf líklega að eiga nokkur teppi á kantinum fyrir staffið ef kalt verður á leiðinni. Svo er alltaf undarlegt að krefjast þess að starfsfólk sé í lokuðum skóm. Fyrir starfsfólk á leið til Tene sem dæmi, er vinnudagurinn níu til tíu tímar stanslítið og enginn vill vera í grennd þegar staffið fer úr skónum sínum…







