H undrað og tólf þúsund krónur alla leið til Asíu og til baka á farsæla Frón hljómar ekki illa. Og það kannski lægsta verð sem þú færð þær leiðirnar án þess að grúfa þig heilu kvöldin yfir flugmiðlum til að púsla saman einhverju þægilegu og öruggu þá leiðina.

Þetta flugfélag er æði góður kostur ef þú nennir engu veseni til Asíu og frá.

Látið okkur þekkja það. Bara eytt þúsund og einni nótt í alls kyns leit að hagkvæmu en líka öruggu flugi frá klakanum til hinna ýmsu staða Asíu gegnum tíðina. Staða á borð við Hong Kong, Mindanao, Bangkok, Ho Chi Minh, Kyoto og jafnvel Sidney líka.

Það eru milljón leiðir færar í meðalári þegar Kófið er ekki að drepa mann og annan. Fljúga billega með lággjaldaflugfélagi til Noregs, Ítalíu, Englands eða Þýskalands og taka þaðan flug til Asíu, yfirleitt með stoppi í Tyrklandi, Katar eða Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Á köflum með þeim hætti er komist fram og aftur fyrir þetta 70 til 90 þúsund krónur í meðalári sem er frábært verð hinu megin á hnöttinn og heim aftur.

Á móti kemur að skipulagningin getur verið flókin og tímafrek. Þú vilt ekki bíða of lengi eftir tengifluginu en að sama skapi viltu heldur ekki missa af tengifluginu. Það ekki svo einfalt þegar um svo langan veg er að fara. Seinkanir á flugi frá Asíu til Evrópu eru yfirleitt drjúgari en þær tíu, tuttugu eða þrjátíu mínútur sem við lendum mögulega í innan álfunnar. Þá hafa flugfélög mismunandi farangursheimildir og það er lítt spennandi að fá tíu kíló héðan frá klakanum en þegar þú ætlar áfram er handfarangursheimildin aðeins átta kíló.

Semsagt stundum tóm leiðindi!

Þessa dagana er þó ein leið sem við mælum með ef fólk vill til Asíu án þess að hafa mikið fyrir eða áhyggjur af nokkru. Sú leið er Finnair.

Jú, sjáið til, Finnair er í sérstöku samkrulli með Icelandair þessi dægrin. Það merkir að þú færð sömu þjónustu hjá báðum flugfélögum burtséð frá hugsanlega mismunandi reglum þeirra. Allur farangur er tékkaður alla leiðina og fólk er nokkuð tryggt ef eitthvað bjátar á þar sem um er að ræða eina bókun fram og aftur. Finnair og eða Icelandair verða að bjarga þér ef þú missir af tengiflugi. Ólíkt því sem gerist ef þú persónulega bókar fjögur mismunandi flug fram og aftur eins og er algengt. Þá er engin trygging fyrir neinu.

Við fundum allnokkur fargjöld á vef Finnair frá Keflavík til Bangkok í Tælandi og sömu leið til baka í október og nóvember og desember niður í 112 þúsund krónur.

Það kann að virðast heldur dýrt en aðeins við fyrstu sýn. Flug fram og aftur til Helsinki héðan kostar jafnan ekki undir 30 þúsund krónum eitt og sér og yfirleitt meira en það. Sem tæknilega merkir að flugið frá Finnlandi til Asíu og væs versa kostar manninn kringum 80 þúsund krónur.

Það er skrambi góður díll jafnvel þó um sardínufarrými sé að ræða með ekkert nema handfarangur meðferðis. Litlar áhyggjur er alltaf gott ferðanesti á fjarlægar slóðir 🙂

Vefur Finnair.