E itt árið hér fyrir nokkru gerði ritstjórnarmeðlimur þau mistök að gefa ekki upp 7300 króna þóknun frá ferðaþjónustufyrirtæki í Kaliforníu á skattframtalinu. Það liðu fjórir mánuðir áður en herra Skattmann bankaði upp á með aukakröfu. Hvers vegna tekur það sama Skattmann TÍU ÁR að rannsaka hugsanleg skattabrot yfirmanna flugfélagsins Play?

Forstjóri flugfélagsins Play er hugsanlega skattsvikari. Skjáskot RÚV

Alltaf auðvelt að nappa þá sem stela sér samloku til matar. Þeir eru jú að borða samlokuna þegar löggan mætir á svæðið.

Verra að sanna svindl upp á þá sem reiða sig á hjálp lögmanna og skattaskjóla til að koma fjármunum undan án þess að greiða eina krónu í vegi, skóla, heilbrigðisþjónustu, atvinnuleysisbætur eða annað það sem almannafé er brúkað til.

Einn slíkur er forstjóri flugfélagsins Play, sem er ein ástæða þess að enginn hér hjá þessum miðli kaupir miða með Play. Annars erum við jú hugsanlega að styrkja skattsvindlara. Fólk er jú sekt þangað til annað sannast þessa dagana.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, og María Rúnarsdóttir, stjórnarmaður Play, hafa bæði verið til rannsóknar skattayfirvalda fyrir hugsanleg skattaundanskot um TÍU ÁRA SKEIÐ!!!

Það súrt að hafa slíkt hangandi yfir sér í fimm mínútur og hvað þá síðan árið 2010/2011. Auðvitað hafa skattayfirvöld verið fjársvelt um langa hríð því annar hver Íslendingur svindlar undan sköttum og best að það komist ekki í hámæli en fyrr má nú aldeilis fyrrvera. Það þarf að fara að reka einhvern hjá skattinum