Þ au eru fjölmörg skemmtiferðaskip heims sem af bera og þykja fyrsta flokks í einu og öllu. En eitt skip sérstaklega er fremst jafningja þegar kemur að slíkum siglingum ef marka má blaðamenn hinnar virtu ferðahandbókar Berlitz.
Það skip er MS Europa sem gert er út af skipafélaginu Hapag-Lloyd sem þekktara er almennt fyrir gámaflutninga en skemmtiferðir.
Þýska skipafélagið gerir þó út fjögur skip til skemmti- og afþreyingarferða og eitt þeirra hefur um fimm ára skeið fengið hæstu einkunn allra slíkra skipa hjá Berlitz.
Skipið, Europa, er reyndar heldur tilþrifalítið að sjá úr fjarska og vart samkeppnishæft við hin nýju risastóru skip sem sigla með farþega fram og aftur um heimsins höf. Europa er öllu minna en allra nýjustu dallarnir og reyndar kallar skipafélagið sjálft skip sitt ekki skemmtiferðaskip heldur heimsins stærstu snekkju.
En það vita þeir sem ferðast af lífi og sál að oft er fagurt undir flagði. Í fátækari löndum reynast oft ljótustu veitingastaðir veita langbesta matinn og þjónustu sem toppar allt gott svo dæmi sé tekið. Það er nefninlega oft fátækir aðilar sem bera hvað mesta ástríðu í hjarta fyrir því sem það gerir dags daglega og fyrir því eru mýmörg dæmi.
Þó flagð eigi nú reyndar alls ekki við um skipið Europa er reyndin sú að þar eru káetur færri en gengur og gerist og þær því ekki svo þröngar og litlar að fólk fær innilokunarkennd. Þvert á móti er minnsta káeta skipsins tæplega 30 fermetrar og svíturnar á pari við allsæmilega íbúð.
Þar eru fleiri vanir þjónar og starfsfólk per gest en gengur og gerist og laun víst nægilega góð til að sama fólkið sækist eftir starfi ár eftir ár. Sem aftur þýðir að starfsfólkið leggur sig fram jafnvel þó gestir eigi til að vera allra leiðinlegasta fólk. Til samanburðar er árleg starfsmannavelta stórra bandarískra skipafélaga um 40 prósent samkvæmt USA Today.
Maturinn um borð þykir raunverulega fyrsta flokks og í aðalmatsalnum starfar kokkur hvers nafn er þekkt um gervallt Þýskaland. Það er sem sagt raunverulega gourmet matur hér í öll mál.
Skemmtidagskrá er ítarleg og daglega bryddað upp á forvitnilegum uppákomum fyrir utan þetta hefðbundna; sundlaugar, heita potta, golfæfingasvæði, nuddstofur og ljúfa bari og samkomustaði.
Síðast en ekki síst, og þetta kemur einhverjum þýskt fyrir sjónir, er eitt sérstakt þilfar lokað af fyrir sérstakan hóp fólks í öllum ferðum skipsins. Það er ekki lokað í eiginlegri merkingu því allir komast þangað sem vilja en þar er leyfilegt að valsa um eða sitja á rassinum eins lítið klædd og gestir sjálfir kjósa. Með öðrum orðum; nektarþilfar. Sem á ekki að koma neitt á óvart hjá þýsku skipafélagi þar sem gestir eru oftar en ekki Þjóðverjar. Þeir sjaldnast feimnir við að fetta sig klæðum og fá brúnku á hina dimmustu staði líkamans.
Líklega kemur ekki heldur á óvart að ferðir með Europa eru ekki mjög léttar á pyngjunni. Þar þykir rúm ein milljón króna ekki hátt verð fyrir vikutúr eða svo. En svona ef einhver hefur dottið í lukkupottinn, elskar nekt og góðan mat og þykir fátt leiðinlegra en bulla í Þjóðverjum er hægt að skoða ferðabækling skipafélagsins hér.






