Þ ó mörgum virðist ljóðlistin eiga undir högg að sækja almennt í heiminum er ekki hægt að segja að heimamenn í Barcelóna reyni ekki að sporna við þeirri þróun. Þar fer fram ár hvert heil ljóðavika, Barcelona Poesía.
Auðvitað hjálpar verulega ætli fólk að njóta erlendra ljóða að kunna skil á tungumálinu og vissulega eru ekki mörg engilsaxnesk ljóðskáld sem þátt taka hér en þó alltaf einhverjir inn á milli.
Borgaryfirvöld gera þetta líka æði vel því hátíðin er eiginlega út um allt og fer varla hjá neinum sem röltir í hægðum um borgina þá vikuna. Skáld leggja undir sig vinsæla bari, mörg söfn borgarinnar og farþegar strætisvagna og jarðlesta fá sinn skerf líka. Ljóðið sem sagt kemur til þín svo þú þurfir ekki að fara til ljóðsins.
Það getur Fararheill vottað að gott katalónskt rauðvín á ljúfum bar í Eixample hverfi Barcelóna verður töluvert betra en ella meðan gott ljóðskáld eys úr skálum sínum. Það jafnvel þó fólk kunni ekki tungumálið vel.
Nákvæma dagskrá má finna á vef hátíðarinnar sem yfirleitt fer fram í maímánuði ár hvert.





