M argt ritað þessa dagana um kjarasamninga nýs íslensks lággjaldaflugfélags og of oft virðist vitgrannara fólk en Gunnar Bragi Sveinsson halda á penna í þeim tilfellum.

Launakjör Play þykja ekki par merkileg en sjaldan er allt sem sýnist. Mynd Play

Kúdos á Viðskiptablaðið sem er, okkur vitandi, hið eina sem fór töluvert ítarlega inn í kjarasamninga flugfélagsins Play en Alþýðusamband Íslands hefur hvatt til þess að landinn sniðgangi nýja flugfélagið vegna hörmulega lágra launa.

Talandi um að sjá ekki skóginn fyrir trénu…

Í fyrsta lagi: Sjálfsagt að ASÍ fetti fingur út í súperlág laun. Við viljum ekki verða Bandaríkin þar sem milljónir eru í fullri vinnu, búa samt á götunni og skrimta á Campbell sveppasúpu eða einhverju þaðan af verra. Það útskýrir að stórum hluta stórar tjaldbúðir heimilislausra í öllum bandarískum borgum þessi dægrin.

Í öðru lagi: Ef marka má úttekt VB er Play að greiða starfsfólki sínu hærri grunnupphæð en Icelandair. Sem hljómar skringilega en kann vel að vera rétt. Icelandair hefur aldrei fengið verðlaun fyrir góð laun nema um sé að ræða efsta fitulagið plús stöku flugmenn sem hafa þar starfað lengur en elstu menn muna.

Í þriðja lagi: Wow Air greiddi líka afar lág grunnlaun til Gullu flugstjóra og Jóns flugþjóns. En málið með grunnlaun er að nánast enginn starfsmaður flugfélags situr uppi með grunnlaun í launaumslaginu um hver mánaðarmót. Fjölmargt kemur þar til en helstar eru seinkanir sem tikka feitt svo ekkert sé talað um aflýsingar flugs. Hvoru tveggja sæmilega algengt í flugi. Allt starfsfólk flugfélagsins fær greitt á meðan plús dagpeninga. Í ofanálag geta flugþjónar og flugmenn verslað dýrar vörur tollfrjálst daglega á megaafslætti. Það er fjórðungs afsláttur á áfengi, tóbaki og öðru glingri sem öðrum landsmönnum býðst aðeins þegar þeir fljúga út eða heim utan að. Versli flugfólk erlendis er verðmunurinn miklu meiri. Ætlar einhver að segja að 25 prósenta afsláttur af vinsælum vörum daglega sé ekki feitur bónus í kladdann á dýru landi?

Í fjórða lagi: Kjarasamningar Play voru gerðir við raunverulegt stéttarfélag og ef ASÍ ætlar að ráðast á einhver ætti það að vera umrætt stéttarfélag og pólitíkusar hvers lög heimiliðu stofnun stéttarfélags sem „býður” fyrirtækjum miklu betri kjör en þessi hefðbundnu. Það ætti að vera auðvelt. Forseti ASÍ var besti vinur forsætisráðherra til margra ára. Eitt símtal kannski eða spjall yfir rauðu í Vesturbænum næsta laugardagskvöld.

Í fimmta lagi: Hvorki Play né Icelandair bjóða grunnlaun sem duga til að fólk geti lifað sómasamlegu lífi á klakanum. En það eru ekki ný tíðindi. Hefur ekki ungt fólk að mestu þurft að sinna tveimur til þremur störfum í einu undanfarin 50 ár til að eiga breik í fyrstu greiðslu á íbúð? Ekki eðlilegt á neinn mælikvarða en normið samt og við öll verið þar fyrir utan börn skattsvindlara á borð við Júlíus Vífil, Orra Haukssonar eða Ólafs Ólafssonar.

Í sjötta lagi: Íslendingar fá aftur val um flug hingað og þangað án þess að veðsetja kotið, börnin með og halda Vísa á floti um aldaraðir. Það sannarlega búbót fyrir flest meðalmennin og sú búbót kemur aðeins ef næsta nauðsynlegir hlutir kosta minna en annars. Það engin tilviljun að Icelandair heimtar nú þetta 30-60% meira fyrir flugferð en Wow Air gerði á sínum tíma. Ef Play tekst að koma skikki á þessa þróun er það skýr plús í kladdann fyrir meirihluta almennings. Plús í kladdann fjárhagslega 😉

Þannig að:

    • Slaka með yfirlýsingar í fjölmiðlum.
    • Leyfum nýju flugfélagi að fljúga í nokkra mánuði og tökum stöðuna að því loknu.
    • Ef í ljós kemur að raunveruleg laun starfsfólks Play er klink og kanill er fínt að grípa til aðgerða en líkast til mun starfsfólkið sjálft vekja athygli á bágum kjörum áður en það gerist.
    • Elskum hvort annað! Lífið of stutt fyrir rugl 🙂